Um KallaKokk
Mötuneytis- og fyrirtækjaþjónusta
Kalli Kokkur er alhliða mötuneytisþjónusta og býður fyrirtækjum og stofnunum uppá matarlausnir í hádegi jafnt sem kvöld. Hægt er að panta fyrir minni eða stærri mötuneyti. Maturinn kemur ýmist fulleldaður en þá annast viðkomandi fyrirtæki skömmtun. Einnig býður Kalli Kokkur uppá fulla þjónustu, þ.e. undirbúning, skömmtun, þrif og gott yfirlæti.
Við tökum að okkur að sjá um allt sem kemur að matarlausnum fyrir fyrirtæki, hvort sem það snýst um starfsmenn eða viðskiptamenn fyrirtækisins.
Leysum af matreiðslumenn í mötuneytum til skemmri eða lengri tíma, t.d. í sumar eða vetrarfríum.
Ef þú ert með spurningar eða pantanir vinsamlega hafðu samband í síma 517-0102 eða í gegnum tölvupóst hjá panta@veislumidsodin.is